Landsmót C sveita í Reykjanesbæ 2026

Landsmót C sveita var haldið í Reykjanesbæ helgina 9. – 11. október 2026.

Við fengum 260 unga hljóðfæraleikara á mótið, sem skemmtu sér saman og æfðuspennandi tónlist í þremur stórum hljómsveitum.  Græna hljómsveitin var skipuð yngstu hljóðfæraleikurunum og léku undir stjórn Össurar Geirssonar. Eiríkur Rafn Stefánsson stjórnaði bláu sveitinni í dúndrandai blásaratónlist og appelsínugula sveitin skipuð lengst komnu nemendunum spilaði latíntónlist undir stjórn Sigrúnar Kristbjargar Jónsdóttur.

Allar hljómsveitirnar heiðruðu svo minningu Gunnars Þórðarsonar með því að spila eitt lag hver úr safni meistarans.