Stjórn SÍSL hefur verið í óðaönn að skipuleggja Óskalög þjóðarinnar sem fara mun fram í Norðurljósasal Hörpu laugardaginn 19. október næstkomandi.
Össur Geirsson, fyrrum formaður SÍSL, kom Óskalögunum á laggirnar árið 2015 og hafa þau verið haldin árlega síðan (að farsóttarárum undanskildum). Tilgangur Óskalaganna er að skólahljómsveitir landsins fái tækifæri að spila íslenska tónlist, í bland við ýmsa aðra, fyrir gesti og gangandi í tónlistarhúsi okkar allra, Hörpu.
Alls munu átta skólahljómsveitir, frá ýmsum hornum landsins, stíga á stokk.
Dagskrá:
11:00-11:30 – Skólahljómsveit Mosfellsbæjar
11:30-12:00 – Skólalúðrasveit Seltjarnarness
12:00-12:30 – Skólahljómsveit Vesturbæjar
12:30-13:00 – Lúðrasveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
13:00-13:30 – Skólahljómsveit Grafarvogs
13:30-14:00 – Skólahljómsveit Austurbæjar
14:00-14:30 – Skólahljómsveit Grafarvogs
14:30-15:00 – Skólahljómsveit Kópavogs
15:00-15:30 – Lúðrasveit Tónlistarskólans á Ísafirði
15:30-16:00 – Skólahljómsveit Kópavogs
16:00-16:30 – Skólahljómsveit Vesturbæjar
16:30-17:00 – Skólahljómsveit Kópavogs
17:00-17:30 – Skólahljómsveit Austurbæjar
Óskalög þjóðarinnar – viðburður á FB
Hlökkum til að sjá sem allra flesta,
stjórn SÍSL