Hér eru upplýsingar um hvað þú þarft að hafa með þér í smiðjurnar:
Í allar hljóðfærasmiðjur á að hafa með sér hljóðfæri og statíf.
Í samspilstækni á að hafa með sér hljóðfærið og statíf
Í steppdans er gott að hafa með sér skó með hörðum botni
Í Zumba er gott að vera í mjúkum skóm.
Bassaleikarar sjá um sinn bassamagnara
Í hljómsveitarstjórnun á að hafa með sér blýant
Í Ukulelesmiðju eiga allir sem geta að koma með sitt Ukulele
Í brasilískt slagverk eru allir beðnir um að koma með sitt hljóðfæri en fá líka að spila á trommur
Í slagverk og flautur má gjarnan taka með sér piccoloflautu eða þríhorn
Í slagverk fyrir slagverksleikara þarf bara að hafa með sér kjuða