Samtök íslenskra skólalúðrasveita
Lög
1. gr.
Samtökin heita:
Samtök íslenskra skólalúðrasveita, skammstafað SÍSL, stofnuð 15. október 1983, af stjórnendum skólalúðrasveita.
2. gr.
Tilgangur samtakanna og markmið er:
- Að auka og bæta hljóðfæraleik meðal barna og unglinga
- Að efla samvinnu milli stjórnendaskólalúðrasveitanna og
hljóðfæraleikaranna innan þeirra - Að halda sameiginlegt lúðrasveitamót á 2-3 ára fresti.
- Að stuðla að eflingu á starfsemi skólalúðrasveitanna.
- Að stuðla að útgáfu á íslensku efni fyrir skólalúðrasveitir.
3. gr.
Aðalfund skal halda fyrir apríllok ár hvert. Rétt til setu á aðalfundi eiga stjórnendur þeirra sveita sem eru í samtökunum. Heimilt er að fleiri sitji aðalfund en einungis einn fulltrúi hverrar sveitar fer með atkvæðisrétt. Einungis skuldlausir félagar eiga atkvæðisrétt á aðalfundi SÍSL
Aðalfund skal boða skriflega með minnst 3 vikna fyrirvara.
4. gr.
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
- Skýrsla stjórnar
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
- Lagabreytingar
- Stjórnarkosning
- Kosning tveggja endurskoðenda
- Ákvörðun um árgjald næsta stjórnartímabils
- Önnur mál
5. gr.
Á aðalfundi skulu kosnir 5 menn í stjórn samtakanna, formaður, gjaldkeri, ritari og 2 meðstjórnendur. Einnig skal kjósa 2 menn til vara. Stjórnin skal kosin leynilegri kosningu til tveggja ára í senn. Annað árið skal kjósa tvo nýja stjórnarmenn og hitt árið þrjá. Stjórnin skiptir með sér verkum.
6. gr.
Stjórnanda eða fulltrúa hverrar sveitar ber að afhenda stjórn samtakanna, starfsskýrslu á hverjum aðalfundi, til varðveislu.
7. gr.
Tilkynna skal þátttöku á landsmótum SÍSL minnst 30 dögum fyrir auglýsta dagsetningu þeirra,
8. gr.
Formaður eða meirihluti stjórnar boðar stjórnarfundi.
9. gr.
Sérhverri skólalúðrasveit eða tónlistarskóla er heimilt að ganga í SÍSL,svo framarlega, sem hún viðurkenni lög samtakanna. Umsóknir sendist formanni samtakanna
Úrsögn úr samtökunum þarf að vera skrifleg og sendast formanni fyrir aðalfund.
10. gr.
Breytingar á lögum þessum eru einungis gerðar á aðalfundi samtakanna og skal greina frá tillögum að lagabreytingum í aðalfundarboði. Einfaldan meirihluta atkvæða á aðalfundi þarf til að lagabreytingar nái fram að ganga.